Forval fyrir sýninguna Myndir Ársins 2006 fór fram nú um helgina. Dómnefndina skipuðu þau Kjartan Dagbjartsson sölustjóri hjá Nordic photos, Max Houghton ritstjóri 8 Magazine, Christopher Lund ljósmyndari og Pétur Thomsen ljósmyndari. Dómnefndarinnar beið það erfiða verkefni að fara yfir 1294 innsendar myndir og velja úr bestu myndirnar í hverjum flokki sem verða að finna á sýningunni sem fram fer í Gerðarsafni þann 6. marsnæstkomandi. Á opnuninni á sýningunni verða veitt verðlaun fyrir bestumyndir ársins og flokkarnir sem veitt eru verðlaun í eru eftirfarandi:
- Mynd ársins
- Fréttamynd ársins
- Íþróttamynd ársins
- Portrettmynd ársins
- Umhverfismynd ársins
- Tímaritamynd ársins
- Daglegt Líf mynd ársins
- Myndasería ársins
- Skoplegasta mynd ársins
Max Houghton er ritstjóri hins virta tímarits 8 Magazine sem gefið erút af Foto8, og deildarstjóri yfir MA Photojournalism við University ofWestminster í London. Hún verður hér á landi um næstkomandi helgi vegnaforvals í árlega keppni Blaðaljósmyndarafélags Íslands, “Myndir Ársins”og mun af því tilefni halda fyrirlestur í húsakynnum LjósmyndasafnsReykjavíkur á laugardaginn klukkan 13.30. Fyrirlesturinn er áensku og ber titilinn “Hard Times – Photography and Renewal”(Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum) og fjallar um breytingar áfréttaljósmyndun í Bandaríkjunum í kringum síðustu heimskreppu. Fjallaðverður um hvernig ljósmyndun getur verið notuð til að ögra hinukyrrbundna. Með því að fjalla um ögrandi ljósmyndir amerískaljósmyndarans Walker Evans og ritverk samverkamanns hans James Ageeásamt því að skoða ljósmyndir Roy DeCarava frá Harlem á fimmtaáratugnum, mun hún að benda á hvernig ögrandi og skýr ljósmyndaverkefnigeta haft áhrif til breytinga.
Á eftir fyrirlestri Maxmunu Brynjar Gunnarsson (Billi) og Árni Torfason ljósmyndarar fjalla umljósmyndafrásagnir og muninn á þeim og myndröðum. Fjallað verður umhvernig dagblöð og tímarit geta nýtt sér ljósmyndafrásagnir á sínumsíðum. Einnig verður fjallað um hvernig best er byggja þær upp og hvaðaviðfangsefni henta best.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og erókeypis inn. Starfsmenn á ritstjórn dagblaða eru sérstaklega hvattirtil að mæta og kynnast nýjum hugmyndum um notkun ljósmynda ífréttamennsku.
Ágætt er að kynna sér Lög og reglur Blaðaljósmyndarafélagsins áður en þið sendið inn myndir. Þátttaka hefur farið stigvaxandi síðustu ár og vonum við að í ár verði engin undantekning á.
- Breyting hefur orðið á fjölda mynda sem senda má inn.
- Hver aðili má aðeins senda inn 50 myndir.
- Inni í þessum myndafjölda (50) mega vera eins margar seríur og hver vill.
- Í dómnefnd verða 5 aðilar
Flokkar
- Mynd ársins
- Fréttamynd ársins
- Íþróttamynd ársins
- Portrettmynd ársins
- Tímaritamynd / samsett mynd ársins
- Umhverfismynd ársins
- Daglegt líf ársins
- Þjóðlegasta myndin
- Myndröð ársins
Nánari skilgreiningar á flokkunum er að finnahér
Ef þú hefur einhverjar spurningar geturðu haft samband við Kristinn í síma 8648202.
Mynd ársins: Kristinn Ingvarsson
Þeir sem hlutu verðlaun að þessu sinni eru:
Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, mynd ársins. Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins á fréttamynd ársins, Golli,ljósmyndari Morgunblaðsins á íþróttamynd ársins, skoplegustu mynd ársins og var einnig verðlaunaður fyrir mynd í flokknum daglegt líf. Júlíus Sigurjónsson á Morgunblaðinu tók portrettmynd ársins, VeraPálsdóttir, ljósmyndari hjá Birtíngi tók tímaritamynd ársins og umhverfismynd ársins. Guðmundur Rúnar Guðmundsson á Morgunblaðinu tók að mati dómnefndar þjóðlegustu mynd ársins. Verðlaun fyrir myndröð ársins 2008 fékk Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu.
Við viljum óska sigurvegurunum innilega til hamingju.
Áhugasamir geta skoðað vinningsmyndirnar hérna.
MYNDIR ÁRSINS 2008
Næstkomandi Laugardag, 14. mars klukkan 15:00 opnar árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni, Kópavogi.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun opna sýninguna og að því loknu mun Valgarður Gíslason, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, tilkynna sigurvegara en veitt verða verðlaun í 7 flokkum og eru þeir:
• Fréttamynd ársins
• Íþróttamynd ársins
• Portrettmynd ársins
• Tímaritamynd ársins
• Umhverfismynd ársins
• Daglegt líf mynd ársins
• Myndaröð ársins
Einnig verða veitt verðlaun fyrir skoplegustu mynd ársins, þjóðlegustu mynd ársins og að lokum mynd ársins
Dómnefndina skipuðu þau Anna Fjóla Gísladóttir, kennari og ljósmyndari , Bára Kristinsdóttir ljósmyndari, Ingi R. Ingason kvikmyndatökumaður, Pétur Thomsen ljósmyndari og Valgerður Jóhannsdóttir Aðjúnkt við Háskóla Íslands í Blaða- og fréttamennsku.
Verðlaun fyrir Mynd Ársins verða veitt af Blaðamannafélagi Íslands, en Beco, Sense, Fotoval og Forlagið veita verðlaun í öðrum flokkum.
Sýningin stendur yfir frá og með 14. mars til 3 maí. Sýning Blaðaljósmyndarafélagsins hefur verið með vinsælustu sýningum landsins undanfarin ár og er engin ástæða til að ætla annað í ár.
Á neðri hæð Gerðarsafns verður Sýning ljósmyndarans Jim Smart. JIM SMART Í 30 ÁR.
Sýningin er styrkt af Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Í fyrsta skipti taka fjórir kvikmyndatökumenn þátt í sýningunni. Með tilkomu þeirra í Blaðamannafélag Íslands kom upp sú tillaga að þeir sameinuðust ljósmyndurum á þessari árlegu sýningu og fögnum við samstarfinu við þá. Þeir munu þeir kynna verk sín á sjónvarpsskjám og vonum við að sýningargestir hafi gaman af þessari nýbreytni.
Eins og undanfarin ár verður bókin MYNDIR ÁRSINS gefin út samhliða sýningunni. Bókin er góð heimild um fréttir síðasta árs, en einnig um menningu og daglegt líf. Það er bókaútgáfan Crymogea sem gefur út bókina og er hún styrkt af Menningarsjóði Blaðamannafélags Ísland.
Allir velkomnir.
Sýningin stendur í fjórar vikur.
- Eldri myndir mánaðarins
Ákveðið hefur verið að taka aftur upp að velja mynd mánaðarins. Þrír sitja í dómnefnd og fara yfir myndir sem birtst í blöðunum í hverjum mánuði. Ef þú ert í félaginu og ert með mynd sem þú heldur að gæti staðið sem mynd mánaðarins endilega sendu póst á hag(hjá)internet.is eða arnitorfa(hjá)gmail.com.
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Sýning Blaðaljósmyndara 2010
Blaðaljósmyndarar verðlaunaðir
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Reykvíkingar og nágrannar
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
Sýning Blaðaljósmyndara 2009
Mynd septembermánaðar 2008
Mynd júlímánaðar 2008

















