Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
SÝNING BLAÐALJÓSMYNDARA 2010
Leiðbeiningar varðandi skil á myndum á sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands

Myndunum skal skila í húsakynni Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Síðumúla 23 (Securitas húsið), fyrir klukkan 15:00 miðvikudaginn 6.janúar 2010. Skilakassar verða komnir upp mánudaginn 4.janúar.

Dómnefnd mun síðan fara yfir innsendar myndir laugardaginn 9.janúar og því verður ekki veittur frestur á skilum.

Sætum í dómnefnd hefur verið fjölgað úr þrem í fimm. Þetta er gert í samræmi við samþykkt á aðalfundi BLÍ. Tilkynnt verður um hverjir eiga sæti í dómnefnd fljótlega.

Þá hefur flokkunum verið fækkað um einn. Skop er ekki lengur sér flokkur heldur mun dómnefndin velja eina mynd úr öllum innsendum myndum sem að þeirra mati er sú skoplegasta á árinu.

Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga:
- Skilafrestur er 6.janúar 2010.
- Ef myndum er ekki skilað inn á réttu formi má dæma þær úr leik.
- Ef caption / medadata er ekki fullnægjandi má dæma myndir úr leik.
- Myndir verða að vera teknar á árinu 2009.
- Ágætt er að velja sér dulnefni sem pottþétt enginn annar mun nota. T.d. L4NG4TONG22 eða eitthvað álíka.
- Sería skal helst ekki innihalda meira en 6 myndir. Í lagi að hafa þær allt að 12 myndum ef það er bráðnauðsynlegt fyrir seríuna. Einnig er í góðu lagi að hafa þær færri en 6.
- Einungis þeir sem eru meðlimir í Blaðaljósmyndarafélagi Íslands geta sent inn myndir í forvalið.
- Hver meðlimur BLÍ má einungis senda 50 myndir í forvalið; hver meðlimur getur skilað inn eins mörgum seríum og hann vill svo framarlega að heildarfjöldi mynda fari ekki yfir 50 eintök.

- Myndirnar fara beint í prentun. Því er nauðsynlegt að senda myndirnar inn í nægum gæðum fyrir prentun.



FLOKKAR:
Senda má inn myndir í eftirfarandi flokka:
- Fréttir
- Portrett
- Íþróttir
- Tímarit
(Uppstilltar myndir. Myndir teknar t.d. í stúdíó. Matarmyndir, Arkítektúr. Í þessum flokki eiga ekki heima portrett myndir)
- Umhverfi
(Var áður Landslag. Bæði hefðbundið landslag sem og borgarlandslag)
- Daglegt Líf
- Seríur

Einnig eru veitt verðlaun fyrir “þjóðlegustu mynd ársins” og "skop" en það er ekki sér flokkar. Dómnefnd velur, að þeirra mati, þjóðlegustu mynd ársins og skoplegustu mynd ársins úr öllum innsendum myndum.

SKIL Á MYNDUM:
- Skila þarf myndunum í tveim eintökum. Eitt fyrir prent og eitt fyrir dómara.

Fyrir Dómnefnd:
- Myndum skal skila inn á JPG formi.
- Myndir skulu ekki vera stærri en 1500 pixels á lengri hliðina.


Fyrir Prent:
- Myndir skulu vera nægilega stórar til að hægt sé að prenta þær í eftirtöldum stærðum: 60x80cm (stakar myndir og myndraðir) 70x70cm (myndir sem eru jafnar á hverja hlið) 120 (panorama myndir skulu ekki vera breiðari en 120 cm).
- Nánari upplýsingar varðandi skilum á myndum fyrir prent er að finna hér.
 

BÆÐI PRENT OG DÓMNEFND:
- Setja skal myndir í möppur eftir flokkunum sem þeir tilheyra.




-Endurskýra skal myndirnar í hverjum flokki á eftirfarandi hátt:
       
-Dulnefni_flokkur_numer.jpg (ágætt að hafa númerið 001, 002, 003 og svoframvegis.
       - Dæmi: joli_frettir_001.jpg



- Seríurnar skal endurskýra áeftirfarandi hátt:
      
- Dulnefni_seria_seriunafn-bokstafur(a,b,c,d,e,f,g,h,i,j...)
       - Dæmi: joli_seria_hm-urslit-a.jpg



CAPTION / MEDADATA:
Ágætt er að eyða öllum upplýsingum úr myndinni áður en settar erunýjar upplýsingar í hana svo það leynist ekkert gamalt.

Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja innsendum myndumí “Medadata”.
- Nafn á myndinni
       
-Fotostation: ObjectName
       - Photoshop: Document Title

- Stuttur texti um myndina
       
-Fotostation: Caption
        -Photoshop: Description

-Dulnefni
      
- Fotostation: Credit
        -Photoshop: Author

- Flokkur
       
-Fotostation: Source
       - Photoshop: Author Title






Smellið hér til að sjá myndina stærri.

Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega hafið samband við Kristinn í netfang kristinn (hjá) kmphoto.is eða í síma 8648202. Eða þá Harald í síma 6994312 eða í netfang hag (hjá) internet.is