1.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands er félag ljósmyndara sem eru meðlimir í Blaðamannafélagi Íslands.
1.2
Félagar eru þeir sem starfa sem fréttaljósmyndarar við dagblöð, tímarit og sjónvarp enda séu þeir félagar í BÍ. Aðild að samtökunum er háð staðfestingu stjórnar BLÍ og skal umsókn vera borin upp á stjórnarfundi.
1.3
Lausamenn og sjálfstætt starfandi ljósmyndarar sem vinna við dagblöð, tímarit, netmiðla og sjónvarp eða aðra sambærilega útgáfu eru fullgildir meðlimir í BLÍ enda séu þeir félagar í BÍ.
2.1
Hætti félagar störfum og séu ekki lengur meðlimir í BÍ eða fullnægi ekki lengur skilyrðum 1 greinar laga eru þeir því ekki lengur meðlimir í BLÍ nema annað sé ákveðið af stjórn félagsins.
3.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands hefur það að leiðarljósi að bæta samvinnu félaga og vinna að bættri aðstöðu ljósmyndara við þeirra störf. Að gæta hagsmuna þeirra í hvívetna og vinna að aukinni menntun félaga og hæfni í starfi. Að vinna að aukinni kynningu á fréttaljósmyndun og halda tengslum við samtök fréttaljósmyndara í Skandinaviu og öðrum löndum.
3.2
Blaðaljósmyndarafélag Íslands skal efla kynningar á ljósmyndun og skipuleggja sýningar og fyrirlestra til skemmtunar og fróðleiks á ljósmyndun og tækni tengd henni.
4.1
Stjórnin skal skipuð þremur mönnum og fer hún með æðsta vald á milli aðalfunda. Á aðalfundi BLÍ er kosin stjórn og er hún skipuð af þremur mönnum. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn og síðan tveir meðstjórnendur og einn varamaður til jafnlangs tíma. Sýningarstjóri er kosinn af stjórnarmönnum á stjórnarfundi til eins árs.
4.2
Aðalfund skal halda á tímabilinu frá 1. ágúst til 1. október ár hvert. Tilkynning skal vera send félagsmönnum eigi skemur en með tveggja vikna fyrirvara um aðalfund. Dagskrá fundarins skal vera auglyst með aðalfundarboði. Fundargerð skal svo lesin upp í byrjun hvers fundar.
5.1
Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að þær séu samþykktar með 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn viku fyrir aðalfund. Annars verða þær ekki bornar undir atkvæði.
6.1
Félagar greiða árgjald sem ákveðið er á aðalfundi ár hvert. Aðeins skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á aðalfundi og mega taka þátt í árlegri sýningu Blaðaljósmyndara-félagi Íslands.
7.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands heldur ár hvert sýningu fréttaljósmynda liðins árs. Sú sýning er fastur liður félagsins og ber stjórn BLÍ að sjá um framkvæmd hennar. Sjá nánar í lið 8.1
8.1
Í byrjun hvers árs er haldin sýning og samkeppni félags blaðaljósmyndara.
8.2
Einungis þeir sem starfa sem fréttaljósmyndarar við dagblöð, tímarit og sjónvarp , lausamenn og sjálfstætt starfandi ljósmyndarar sem vinna við dagblöð, tímarit, netmiðla og sjónvarp eða aðra sambærilega útgáfu eru gjaldgengir á sýningu BLÍ svo framarlega sem þeir séu meðlimir í Blaðamannafélagi Íslands.
8.3
Keppt er í eftirfarandi flokkum:
1-Fréttamynd ársins
2-Portrett ársins
3-Sportmynd ársins
4-Myndröð
5-Daglegt líf
6-Tímaritamynd ársins
7-Landslag ársins
Veittar eru viðurkenningar fyrir eftirtalda flokka ásamt því sem valin er þjóðlegasta mynd ársins og er sérstök viðurkenning veitt fyrir hana. Blaðamannafélag Íslands veitir verðlaun fyrir mynd ársins.
8.4
Reglur dómnefndar: Sýningarstjóri afhendir dómnefnd umslögin með myndir BLÍ félaga og sér til þess að halda skrá yfir keppendur. Tekin eru öll dulnefna umslögin og dulnefni hvers og eins skráð af sýningarstjóra. -Dómnefnd þarf að gefa sér góðan tíma og lesa á hvern einasta myndatexta við myndirnar og tryggja það að allir dómnefndarmenn geri það hið sama. -Dómnefndin þarf að hafa ljósaborð og lúpu. -Hver mynd á sýningunni er kandidat sem mynd ársins. -Heimilt er að færa myndir á milli flokka telji dómnefnd að þær eigi betur við annarsstaðar. -Dómnefnd ber að hafa það í huga að á forvali fyrir sýningu geta myndir verið í mismunandi gæðum, stærðum og prentunum og því ber að líta á þær með opnum og jákvæðum huga. -Beri einhver mynd af öðrum myndum í flokki þar sem þegar er komin verðlaunamynd þá leyfist dómnefnd að veita henni munnlega viðurkenningu. -Verði einhver vafi á merkingum á myndum eða önnur atriði sem óljós eru ber dómnefnd að hafa samband við sýningarstjóra til frekari ráðleggingar. -Eftir valið mun dómnefnd afhenda sýningarstjóra lista yfir þær myndir sem valdar hafa verið og einnig blað með umsögn yfir verðlaunamyndirnar. -Mynd ársins ásamt öllum öðrum verðlaunamyndum eru skannaðar inn fyrir bækling keppninnar strax eftir að dómnefnd hefur lokið störfum. -Á opnun sýningarinnar mun formaður dómnefndar tilkynna úrslit flokka og lesa umsögn dómnefndar við hverja viðurkenningu fyrir sig.
8.5
Þeir sem senda inn myndir á sýningu BLÍ í pósti þurfa að láta sýningarstjóra eða formann BLÍ vita, þegar sending er farinn af stað og gefa upplýsingar um sendingar-númer og hvaðan sent. Einnig skal hafa í huga að senda það tímanlega að sendingin nái fyrir umræddan dag. Hver þáttakandi skilar inn mest fjórum stórum umslögum með myndum í, merktum dulnefni, flokki ( einum af fjórum aðalflokkum) auk fjölda mynda í umslagi. Myndatexta skal senda á tölvupósti til sýningarstjóra eða fylgja með á diskettu í PC Word formati og merkja diskinn dulnefninu eða láta fylgja með forvalsmyndum í umslagi. Endanlegar stærðir mynda sem valdar verða inn á sýninguna eiga að vera í eftirtöldum stærðum: stakar myndir allt að 50 x 75 cm, myndraðir 40 x 50 cm, og myndir sem eru jafnar á hverja hlið skulu vera allt að 70 x 70 cm og myndröð allt að 50 x 50 cm. Frávik frá þessu þarf að bera undir sýningarnefnd, myndirnar verða límdar upp á frauðplast. Fari svo að dómnefnd velji enga af myndum einhvers þáttakenda, er boðið uppá að hver þáttakandi megi merkja eina mynd, sem er að hans mati sú mynd sem hann vill að verði með á sýningunni, þannig að allir þeir sem senda inn verði með a.m.k. eina mynd.
Stjórn:
Formaður: Kristinn Magnússon
Arnaldur Halldórsson
Haraldur Guðjónsson
Anton Brink Hansen
- Eldri myndir mánaðarins
Ákveðið hefur verið að taka aftur upp að velja mynd mánaðarins. Þrír sitja í dómnefnd og fara yfir myndir sem birtst í blöðunum í hverjum mánuði. Ef þú ert í félaginu og ert með mynd sem þú heldur að gæti staðið sem mynd mánaðarins endilega sendu póst á hag(hjá)internet.is eða arnitorfa(hjá)gmail.com.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Forval fyrir Myndir Ársins
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Sýning Blaðaljósmyndara 2010
Blaðaljósmyndarar verðlaunaðir
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Reykvíkingar og nágrannar
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
Sýning Blaðaljósmyndara 2009

















