Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
11. janúar 2010
Forval fyrir Myndir Ársins

Forval fyrir sýninguna Myndir Ársins 2006 fór fram nú um helgina. Dómnefndina skipuðu þau Kjartan Dagbjartsson sölustjóri hjá Nordic photos, Max Houghton ritstjóri 8 Magazine, Christopher Lund ljósmyndari og Pétur Thomsen ljósmyndari. Dómnefndarinnar beið það erfiða verkefni að fara yfir 1294 innsendar myndir og velja úr bestu myndirnar í hverjum flokki sem verða að finna á sýningunni sem fram fer í Gerðarsafni þann 6. marsnæstkomandi. Á opnuninni á sýningunni verða veitt verðlaun fyrir bestumyndir ársins og flokkarnir sem veitt eru verðlaun í eru eftirfarandi:


- Mynd ársins

- Fréttamynd ársins

- Íþróttamynd ársins

- Portrettmynd ársins

- Umhverfismynd ársins

- Tímaritamynd ársins

- Daglegt Líf mynd ársins

- Myndasería ársins

- Skoplegasta mynd ársins

- Þjóðlegasta mynd ársins

til baka