Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
8. janúar 2010
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Max Houghton er ritstjóri hins virta tímarits 8 Magazine sem gefið erút af Foto8, og deildarstjóri yfir MA Photojournalism við University ofWestminster í London. Hún verður hér á landi um næstkomandi helgi vegnaforvals í árlega keppni Blaðaljósmyndarafélags Íslands, “Myndir Ársins”og mun af því tilefni halda fyrirlestur í húsakynnum LjósmyndasafnsReykjavíkur á laugardaginn klukkan 13.30.

Fyrirlesturinn er áensku og ber titilinn “Hard Times – Photography and Renewal”(Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum) og fjallar um breytingar áfréttaljósmyndun í Bandaríkjunum í kringum síðustu heimskreppu. Fjallaðverður um hvernig ljósmyndun getur verið notuð til að ögra hinukyrrbundna. Með því að fjalla um ögrandi ljósmyndir amerískaljósmyndarans Walker Evans og ritverk samverkamanns hans James Ageeásamt því að skoða ljósmyndir Roy DeCarava frá Harlem á fimmtaáratugnum, mun hún að benda á hvernig ögrandi og skýr ljósmyndaverkefnigeta haft áhrif til breytinga.


Á eftir fyrirlestri Maxmunu Brynjar Gunnarsson (Billi) og Árni Torfason ljósmyndarar fjalla umljósmyndafrásagnir og muninn á þeim og myndröðum. Fjallað verður umhvernig dagblöð og tímarit geta nýtt sér ljósmyndafrásagnir á sínumsíðum. Einnig verður fjallað um hvernig best er byggja þær upp og hvaðaviðfangsefni henta best.

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og erókeypis inn. Starfsmenn á ritstjórn dagblaða eru sérstaklega hvattirtil að mæta og kynnast nýjum hugmyndum um notkun ljósmynda ífréttamennsku.

Max Houghton er ritstjóri Foto8 tímaritsins í London (www.foto8.com)sem sérhæfir sig í fréttaljósmyndun og birtingu á myndasögum. Max ereinnig deildarstjóri yfir MA Photojournalism við University ofWestminster í London.

Brynjar Gunnarsson (Billi) hefur veriðstarfandi fréttaljósmyndari í 11 ár bæði á dagblöðum og sjálfstættstarfandi. Hann hefur unnið fyrir fjölda blaða hér á landi og erlendis,meðal annars: The Guardian og Observer í Englandi, National Geographicí Póllandi, AP og Fréttablaðið. Brynjar er með MA gráðu ífréttaljósmyndun.

Árni Torfason er sjálfstætt starfandiljósmyndari. Hann hefur unnið til fjölda viðurkenninga á sýningumBlaðaljósmyndarafélags íslands. Meðal annars hefur hann fengið verðlauní flokkunum „Mynd ársins“, „Íþróttamynd ársins“ og „Landslagsmyndársins“. Árni hefur meðal annars unnið fyrir AP, Getty, The Guardian ogMorgunblaðið.

(Mynd: Dorothea Lange, Migrant mother, 1936.)

til baka