Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
12. mars 2009
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands

MYNDIR ÁRSINS 2008

Næstkomandi Laugardag, 14. mars klukkan 15:00 opnar árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni, Kópavogi.
 
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson,  mun opna sýninguna og að því loknu mun Valgarður Gíslason, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, tilkynna sigurvegara en veitt verða verðlaun í 7 flokkum og eru þeir:

    •    Fréttamynd ársins
    •    Íþróttamynd ársins
    •    Portrettmynd ársins
    •    Tímaritamynd ársins
    •    Umhverfismynd ársins
    •    Daglegt líf mynd ársins
    •    Myndaröð ársins

Einnig verða veitt verðlaun fyrir skoplegustu mynd ársins, þjóðlegustu mynd ársins og að lokum mynd ársins

Dómnefndina skipuðu þau Anna Fjóla Gísladóttir, kennari og ljósmyndari , Bára Kristinsdóttir ljósmyndari, Ingi R. Ingason kvikmyndatökumaður, Pétur Thomsen ljósmyndari  og Valgerður Jóhannsdóttir Aðjúnkt við Háskóla Íslands í Blaða- og fréttamennsku.

Verðlaun fyrir Mynd Ársins verða veitt af Blaðamannafélagi Íslands, en Beco, Sense, Fotoval og Forlagið veita verðlaun í öðrum flokkum.

Sýningin stendur yfir frá og með 14. mars til 3 maí. Sýning Blaðaljósmyndarafélagsins hefur verið með vinsælustu sýningum landsins undanfarin ár og er engin ástæða til að ætla annað í ár.



Á neðri hæð Gerðarsafns verður Sýning ljósmyndarans Jim Smart.  JIM SMART Í 30 ÁR.
Sýningin er styrkt af Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Í fyrsta skipti taka fjórir kvikmyndatökumenn þátt í sýningunni.  Með tilkomu  þeirra í Blaðamannafélag Íslands kom upp sú tillaga að þeir sameinuðust ljósmyndurum á þessari árlegu sýningu og fögnum við samstarfinu við þá.   Þeir munu þeir kynna verk sín á sjónvarpsskjám  og vonum við að sýningargestir hafi gaman af þessari nýbreytni. 
Eins og undanfarin ár verður bókin MYNDIR ÁRSINS gefin út samhliða sýningunni. Bókin er góð heimild um fréttir síðasta árs, en einnig um menningu og daglegt líf. Það er bókaútgáfan Crymogea sem gefur út bókina og er hún styrkt af Menningarsjóði Blaðamannafélags Ísland. 

til baka