Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
12. janúar 2009
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson

Jónatan Grétarsson er ungur ljósmyndari sem hefur undanfarið ár unnið að því að ljósmynda íslenska listamenn. Á sýningunni verða um 40 portrett af þekktum listamönnum úr ýmsum greinum og birta þær áhugaverða sýn á skapandi einstaklinga samtímans. Jónatan notar áhrifamikið samspil ljóss og skugga til að mála sterkar myndir af svipmiklu fólki.


Íslenskir listamenn er langtímaverkefni sem Jónatan hefur tekist á hendur. Hann leitast við að skrásetja íslenska listamenn og hefur í aðdraganda sýningarinnar tekið fjölda ljósmynda af meira en hundrað listamönnum úr öllum listgreinum og á ýmsum aldri. Sýningin í Hafnarborg er fyrst í sýningaröð um íslenska listamenn og fyrsta skrefið af mörgum þar sem hann fæst við þetta viðfangsefni.


Jónatan Grétarsson (f.1979) lauk sveinsprófi í ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík 2002 og hefur hann einnig stundað nám við International Center of Photography í New York. Hann hefur tekið þátt í samsýningum blaða- og ljósmyndarafélagsins og unnið sem ljósmyndari fyrir tímarit auk þess að reka eigið studio.

til baka