Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
10. janúar 2009
Sýning Blaðaljósmyndara 2009
Forval fyrir sýningu Blaðaljósmyndara fer fram helgina 24.-25.janúar næstkomandi. Sýningin verður síðan opnuð formlega 14.mars 2009 í Gerðarsafni. Skilafrestur fyrir forvalið er föstudagurinn 23.janúar og þarf að vera búið að skila inn myndum í húsakynni Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23, fyrir klukkan 12:00. Nánari upplýsingar um skil á myndum er að finna hér og þar á meðal þátttökuseðil.

Ágætt er að kynna sé Lög og reglur Blaðaljósmyndarafélagsins áður en þið sendið inn myndir. Vonandi sjá sem flestir meðlimir Blaðaljósmyndarafélagsins sér fært um að taka saman myndir og senda inn á sýninguna í ár. Þátttaka hefur farið stigvaxandi síðustu ár og vona ég að í ár verði engin undantekning á.

  • Eins og í fyrra verður flokkurinn "Landslag" nú "Umhverfi.
  • Ekki er sérstakur flokkur sem heitir "skop". Dómnefnd mun þó velja eina mynd sem þýkir skoplegust mynda úr öllum flokkunum líkt og í fyrra.
  • Einnig mun dómnefndin velja Þjóðlegustu myndina sem og Mynd ársins úr öllum innsendum myndum.
  • Takmark hefur verið sett á innsendar myndir. Hver aðili má senda inn 25 myndir og 3 seríur.
  • Í dómnefnd verða 5 aðilar
Nánar um flokka:
  • Fréttamynd ársins
  • Íþróttamynd ársins
  • Portrettmynd ársins
  • Tímaritamynd / samsett mynd ársins
  • Umhverfismynd ársins
  • Daglegt líf ársins
  • Myndröð ársins

til baka