Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
21. febrúar 2008
Myndir ársins 2007. Sýning í Gerðarsafni
Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi klukkan 15:00 opnar árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni, Kópavogi.

Geir H Haarde forsætisráðherra mun opna sýninguna og að því loknu mun Ragnar Th. Sigurðsson, formaður dómnefndar, tilkynna sigurvegara en veitt verða verðlaun í 10 flokkum og eru þeir:
- Mynd ársins
- Fréttamynd ársins
- Íþróttamynd ársins
- Portrettmynd ársins
- Tímaritamynd ársins
- Skoplegasta mynd ársins
- Umhverfismynd ársins
- Daglegt líf ársins
- Þjóðlegasta myndin
- Myndröð ársins

Í ár eins og í fyrra mun einn aðili veita vegleg peningaverðlaun fyrir alla flokka, að mynd ársins undanskyldri. Það er Glitnir sem styrkir Blaðaljósmyndara svo rausnarlega.

Á neðri hæð safnsins sýnir Páll Stefánsson myndir frá síðasta ári á sýningunni XXV X2.

Þess má geta að á báðar sýningarnar eru aðgangur ókeypis. Sýningin stendur yfir til 16.mars 2008.

Það eru tæplega 40 ljósmyndarar sem taka þátt í sýningunni í ár og samtals eru myndirnar rúmlega 200. Dómnefndin í ár var skipuð þeim Pétri Thomsen, Brooks Walker, Ragnari Th. Sigurðssyni, Eggerti Skúlasyni og Per Folkver.

Eins og síðustu ár þá kemur bókin Myndir Ársins út samhliða sýningunni og verður til sölu í Gerðarsafni sem og fer í dreyfingu strax eftir opnunarhelgina.

til baka