Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
3. janúar 2008
Sýning Blaðaljósmyndara 2008
Forval fyrir sýningu Blaðaljósmyndara fer fram helgina 19.-20.janúar næstkomandi. Sýningin verður síðan opnuð formlega 23.febrúar 2008. Skilafrestur fyrir forvalið er miðvikudagurinn 16.janúar og þarf að vera búið að skila inn myndum í húsakynni Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23, fyrir klukkan 12:00. Nánari upplýsingar um skil á myndum er að finna hér og þar á meðal þátttökuseðil. Ágætt er að kynna sér Lög og reglur Blaðaljósmyndarafélagsins áður en þið sendið inn myndir. Vonandi sjá sem flestir meðlimir Blaðaljósmyndarafélagsins sér fært aðtaka saman myndir og senda inn á sýninguna í ár. Þátttaka hefur fariðstigvaxandi síðustu ár og vona ég að í ár verði engin undantekning á.

Nokkrar breytingar frá síðustu sýningu:
- Í dómnefnd verða 5 aðilar en ekki 3 eins og í fyrra
- Flokkurinn "Landslag" heitir nú "Umhverfi". Nánari skilgreiningar á flokkunum er að finna hér
- Skopflokkurinn hefur verið lagður af. Ekki sendar myndir í þann flokk. Í staðin verður valin ein mynd "skoplegasta mynd ársins" úr öllum myndunum. Svipað eins og "Þjóðlegasta myndin"
- Takmark hefur verið sett á innsendar myndir. Hver aðili má senda inn 50 myndir sem og 4 seríur.

til baka