Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
9. október 2007
SVIÐSMYNDIR í Fótógrafí

Nú stendur yfir sýningin "Sviðsmyndir" í Fótógrafí, skólavörðustíg 4a. Þarna er að finna tónleikamyndir sem Árni Torfason hefur tekið á árabilinu 2002-2007. Sýningin stendur yfir til 3.nóvember 2007 og er opið alla daga vikunnar í Fótógrafí nema sunnudaga. Allir velkomnir.

Mikil gróska hefur verið í tónleikahaldi á Íslandi síðustu árog hafa fjölmargar heimsþekktar hljómsveitir leikið fyrir landann. Ummiðjan þennan mánuð hefst tónleikaahátíðin Iceland Airwaves sem virðisthafa fest sig í sessi og fjölmargir útlendingar sækja ár hvert.

Árni Torfason ljósmyndari hefur verið manna iðnastur aðmynda tóneikaviðburði og hafa sviðsmyndir hans birst víða, meðal annarsí Morgunblaðinu og Grapevine. Á sýningunni í Fótógrafí sýnir Árnimyndir teknar á tónleikum frá 2002 til 2007. Myndirnar eru jafnfjölbreyttar og tónlistarmennirnir sem á þeim eru. Allt frá pönkhljómsveit í Þróunarmiðstöðinni þar sem áhorfendur voru ekki nema mestalagi tuttugu til hljómsveita á borð við Franz Ferdinand, Muse ogIncubus sem spila fyrir þúsundir víðsvegar um heiminn. Annaðtónlistarfólk sem finna má á myndunum er m.a. JulietteLewis,Jakobínarína, 50 Cent, Foo Fighters, Sigur Rós, Mínus, Coldplay,Maus og Nick Cave.

til baka