Sýningin Undrabörn með ljósmyndum sem Mary Ellen Mark hefur tekið af fötluðum börnum í Öskjuhlíðarskóla, Safamýrarskóla og Lyngási var opnuð með marföldum hátíðahöldum í Þjóðminjasafni Íslands um helgina. Á opnanirnar komu samtals um 1100 manns.
Sýningin er fjórþætt. Auk ljósmynda Mary Ellen Mark sem sýna veruleika fatlaðra barna á Íslandi í dag er sjónum beint að skólaumhverfi þeirra í ljósmyndum Ívars Brynjólfssonar á Veggnum, listsköpun undrabarnanna sjálfra er til sýnis í anddyrinu og kvikmynd Martin Bell um Alexander er sýnd daglega.
Kvikmynd Martin Bell fjallar um Alexander Viðar Pálsson, einn nemanda Öskjuhlíðarskóla. Hún er sýnd í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, alla daga frá klukkan 13 til 17. Kvikmyndasýningin hefst að jafnaði á heila tímanum og tekur um 45 mínútur.
Mary Ellen Mark mun einnig árita bók sína í Þjóðminjasafninu milli klukkan 15 og 16 þriðjudaginn 11. september.
- Eldri myndir mánaðarins
Ákveðið hefur verið að taka aftur upp að velja mynd mánaðarins. Þrír sitja í dómnefnd og fara yfir myndir sem birtst í blöðunum í hverjum mánuði. Ef þú ert í félaginu og ert með mynd sem þú heldur að gæti staðið sem mynd mánaðarins endilega sendu póst á hag(hjá)internet.is eða arnitorfa(hjá)gmail.com.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Forval fyrir Myndir Ársins
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Sýning Blaðaljósmyndara 2010
Blaðaljósmyndarar verðlaunaðir
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Reykvíkingar og nágrannar
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
Sýning Blaðaljósmyndara 2009

















