Geir H Haarde forsætisráðherra mun opna sýninguna og að því loknu mun Ari Sigvaldason, formaður dómnefndar, tilkynna sigurvegara en veitt verða verðlaun í 10 flokkum og eru þeir:
- Mynd ársins
- Fréttamynd
- Íþróttamynd
- Portrettmynd
- Tímaritamynd
- Skoplegasta myndin
- Landslagsmynd
- Daglegt líf
- Þjóðlegasta myndin
- Myndröð
Í fyrsta skipti mun einn aðili veita vegleg peningaverðlaun fyrir alla flokka, að mynd ársins undanskyldri. Það er Glitnir sem styrkir Blaðaljósmyndara svo rausnarlega.
Dómnefndina skipuðu þeir Ari Sigvaldason, Bjarni Eiríksson og Terje Bringedal, ristjóri Verdens Gang í Noregi. Alls bárust 2497 myndir í forvalið og valdi dómnefndin rúmlega 200 myndir sem prýða veggi Gerðarsafns.
Sýningin stendur yfir frá og með 17.febrúar til 18.mars. Sýning Blaðaljósmyndarafélagsins hefur verið með vinsælustu sýningum landsins undanfarin ár og er engin ástæða til að ætla annað í ár.
Á neðri hæð safnsins verður samsýning nokkurra ljósmyndara með myndum frá Kárahnjúkum. Þessir ljósmyndarar eru þeir Ragnar Axelsson, Páll Stefánsson, Þorvaldur Örn Kristmundsson, Kristinn Ingvarsson, Brynjar Gauti Sveinsson og Vilhelm Gunnarsson.
Eins og undanfarin tvö ár verður bókin MYNDIR ÁRSINS gefin út samhliða sýningunni. Bókin er góð heimild um fréttir síðasta árs, en einnig um menningu og daglegt líf. Það er Edda útgáfa sem gefur út bókina og er hún styrkt af Menningarsjóði Blaðamannafélagsins.
Allar nánari upplýsingar veita:
Brynjar Gunnarsson (sýningarstjóri)
Netfang: brynjar.gunnarsson@gmail.com
Sími: 6955093
Árni Torfason (formaður Blaðaljósmyndarafélagsins)
Netfang: arni@torfason.is
Sími: 8695330
- Eldri myndir mánaðarins
Ákveðið hefur verið að taka aftur upp að velja mynd mánaðarins. Þrír sitja í dómnefnd og fara yfir myndir sem birtst í blöðunum í hverjum mánuði. Ef þú ert í félaginu og ert með mynd sem þú heldur að gæti staðið sem mynd mánaðarins endilega sendu póst á hag(hjá)internet.is eða arnitorfa(hjá)gmail.com.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Forval fyrir Myndir Ársins
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Sýning Blaðaljósmyndara 2010
Blaðaljósmyndarar verðlaunaðir
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Reykvíkingar og nágrannar
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
Sýning Blaðaljósmyndara 2009

















