Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
8. janúar 2007
Forvali fyrir Myndir Ársins 2006 lokið

Forval fyrir sýninguna Myndir Ársins 2006 fór fram nú um helgina. Alls bárust 2497 myndir í forvalið og af þeim voru valdar 209 myndir sem verða að finna á sýningunni sem fram fer í Gerðarsafni þann 17.febrúar næstkomandi. Einnig kemur út bók samhliða sýningunni og er það Edda útgáfa sem sér um útgáfuna á henni. Á opnuninni á sýningunni verða veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins og flokkarnir sem veitt eru verðlaun í eru eftirfarandi:
- Mynd ársins
- Fréttamynd ársins
- Íþróttamynd ársins
- Portrettmynd ársins
- Landslagsmynd ársins
- Tímaritamynd ársins
- Daglegt Líf mynd ársins
- Myndasería ársins
- Skoplegasta mynd ársins
- Þjóðlegasta mynd ársins

Í dómnefndinni þetta árið sátu þeir Terje Bringedal frá Noregi, Ari Sigvaldason og Bjarni Eiríksson.

til baka