Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
4. desember 2006
"Chernobyl í ljósmyndum"
Fyrirlestur
Þriðjudaginn 5.desember kl. 17.00 í LHÍ Skipholti, stofu 113

David McMillan
“Chernobyl í ljósmyndum”

Ljósmyndarinn David McMillan frá Winnipeg heldur fyrirlestur í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans, þriðjudaginn 5.desember kl.17.00.  Árið 1986 leysti Chernobyl kjarnorkuslysið úr læðingi tvöhundruðfalda geislun á við sprengjurnar sem varpað var á Hiroshima og Nagasaki.  Um 135.000 þúsund manns urðu að yfirgefa svæðið í kjölfarið og yfir 11.000 tilfelli af krabbameini voru greind.  David McMillan hefur heimsótt Chernobyl nokkrum sinnum síðan árið 1994 og ljósmyndir hans frá svæðinu eru merkileg heimildavinna um hnignun staðarins.  David er vel þekktur á sviði ljósmyndunnar og hefur haldið fjölmargar einkasýningar bæði í Kanada og á alþjóðavettvangi.  Jafnframt hefur hann verið gestafyrirlesari við Yale University í New Haven CT, Hong Kong og víðs vegar um Kanada.

Fyrirlesturinn er á ensku.

til baka