Hinn árlegi Canon þjónustudagur Beco verður haldinn þann 1. desember nk. en þá býður fyrirtækið öllum Canon notendum upp á fría yfirferð á Canon EOS myndavélum og fylgihlutum.
Sérfræðingar Beco fara yfir búnaðinn þinn og þú færð ítarlega ástandsskýrslu. Ef þú kemur með búnaðinn á milli 10:00 og 13:00 færðu hann til baka samdægurs. Ef þú kemur eftir kl. 13:00 færðu búnaðinn 2. desember.
Við hvetjum alla Canon EOS notendur til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og kynna sér ýmsar Canon nýjungar og tilboð í leiðinni, m.a. útprentanir úr nýjum Canon prenturum. Allir fara í Canon lukkupottinn þar sem þrír heppnir geta unnið Ixus Wireless, Canon Speedlite 220EX flass og SELPHY CP510 ljósmyndaprentara.
Meira um þjónustudaginn og tilboð á síðu Beco.
- Eldri myndir mánaðarins
Ákveðið hefur verið að taka aftur upp að velja mynd mánaðarins. Þrír sitja í dómnefnd og fara yfir myndir sem birtst í blöðunum í hverjum mánuði. Ef þú ert í félaginu og ert með mynd sem þú heldur að gæti staðið sem mynd mánaðarins endilega sendu póst á hag(hjá)internet.is eða arnitorfa(hjá)gmail.com.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Forval fyrir Myndir Ársins
Endurnýjun ljósmyndunar á krepputímum “Hard Times – Photography and Renewal
Sýning Blaðaljósmyndara 2010
Blaðaljósmyndarar verðlaunaðir
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands
Reykvíkingar og nágrannar
Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
Sýning Blaðaljósmyndara 2009

















