Nick CaveTurning TorsoNO TAV!Auður SigbergsdóttirÍSLAND - SVÍÞJÓÐSif PálsdóttirRáðherrar framtíðarinnarBorðtennisMugisonMynd Ársins 2005Daglegt Líf 2005Fréttamynd Ársins 2005Íþróttamynd Ársins 2005Landlagsmynd Ársins 2005Portrett Ársins 2005Skop Ársins 2005
24. nóvember 2006
Ljósmyndurum einum heimilt að taka vegabréfsmyndir hjá sýslumönnum og lögreglustjóra

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu, að ljósmyndurum með iðnréttindi og nemendum í ljósmyndun sé einum heimilt að taka ljósmyndir í vegabréf hjá sýslumönnum og lögreglustjóra. Dómurinn féllst hins vegar ekki á kröfu Ljósmyndarafélags Íslands um að viðurkennt yrði að óheimilt væri að haga gjaldtöku við útgáfu vegabréfa þannig að myndataka sé innifalin í kostnaði umsækjanda vegna útgáfu vegabréfs.

Í dómi héraðsdóms segir, að útgáfa vegabréfa sé hluti af verkefnum sem stjórnvöldum séu falin með lögum. Vinnsla þeirra sé því í atvinnuskyni í skilningi iðnaðarlaga. Samkvæmt því verði að fallast á, að þegar teknar eru ljósmyndir til notkunar við útgáfuna skuli það gert undir stjórn meistara í ljósmyndun og yfirleitt af meistara, sveini eða nemanda í ljósmyndaiðn. Skipti ekki máli hér þó ljósmyndin verði ekki nýtt til neinna annarra nota.

Dómurinn segir jafnframt, að iðnlærðir ljósmyndarar hafi ekki einkarétt á töku ljósmynda þó aðrir en þeir megi ekki stunda ljósmyndun í atvinnuskyni. Sé ekki að lögum unnt að banna öðrum töku ljósmynda, sem eigi að nota í vegabréf, þótt unnt sé að viðurkenna að töku stafrænna mynda hjá lögreglustjóra og sýslumönnum skuli iðnmenntaðir ljósmyndarar sinna.

Með breyttri tilhögun við útgáfu vegabréfa séu ekki skert eignar- eða atvinnuréttindi ljósmyndara þannig að í bága fari við stjórnarskrá. Í vernd þessara réttindi felist ekki fortakslaus skylda ríkisins til að tryggja áframhaldandi óskert viðskipti og breyta ekki lögum þannig að viðskiptin geti minnkað.

Heimild: mbl.is

til baka